Griðungr
Krukka af Griðungr húðkremi á mosavöxnum hraunsteini

Húðkrem · 100% hrein nautatólg

Eitt hráefni.
Ekkert annað.

Handgert húðkrem úr innanmör nautgripa sem aldir eru með auðgandi landbúnaði. Engin ilmefni, engin rotvarnarefni, engin fylliefni.

Panta krukku

Hvers vegna tólg?

Nautatólg hefur svipaða uppbyggingu og húðfita og hentar því öllum húðgerðum. Kremið má bæði nota á líkama og andlit.

01

Heilnæmt

Tólg er náttúruleg fita sem fellur vel að húðinni og er rík af fituleysanlegum vítamínum. Kremið inniheldur aðeins eitt hráefni, svo þú veist nákvæmlega hvað þú berð á þig.

02

Umhverfisvænt

Nautgripirnir eru aldir með auðgandi landbúnaði sem byggir upp jarðveg og heilbrigð vistkerfi.

Í gegnum húðina frásogum við efni. Því ættum við aðeins að bera á líkamann hrein og náttúruleg efni sem óhætt er að skili sér út í blóðrásina.

Hvað er í tólginni?

Náttúrulega ríkt af því sem húðin þarf

Eitt hráefni, en ekki einfalt. Hrein nautatólg inniheldur fitusýrur og fituleysanleg vítamín sem hafa lengi verið notuð til að næra húðina.

Sterínsýra

fyrir húðina

Sterínsýra hefur lengi verið notuð í húðvörur enda þekkt fyrir að mýkja og slétta húð, ásamt því að gefa henni raka.

Sterínsýra hefur jákvæð áhrif á hvatbera og er því mikilvægur hluti af góðri efnaskiptaheilsu. Góð efnaskiptaheilsa er lykillinn að heilbrigðum líkama.

Um 20% af nautafitu er sterínsýra.

K2-vítamín

fyrir húðina

  • Leiðbeinir kalki úr mjúkvefjum og inn í bein
  • Hindrar kalksöfnun í húðinni
  • Kemur í veg fyrir ótímabæra öldrun húðarinnar

A-vítamín

fyrir húðina

  • Styður heilbrigða kollagenframleiðslu sem heldur húðinni sléttri og unglegri
  • Verndar húðina gegn oxunarálagi
  • Hjálpar til við myndun nýrra húðfrumna
  • Spornar gegn bólu- og fílapenslamyndun

Umsagnir

Það sem fólk segir

Ég elska kremið, hentar mér mjög vel. Nota það einu sinni á dag og húðin er silkimjúk allan sólarhringinn.

Ég bý á Spáni og það var kalt hjá mér svo það var pínu erfitt að ná kreminu úr krukkunni, núna er eðlilegt hitastig og mjög gott að ná kreminu úr.

Það er smá tólgarlykt af því en truflar mig ekkert.

Viðskiptavinur

Kremið virkar mjög vel á sólbruna og exem sem ég var með er farið.

Mæli 100% með og myndi kaupa þetta krem aftur og aftur.

Viðskiptavinur

Maðurinn minn er með rósroðahúð og þetta er það eina sem ertir hann ekki. Ég elska það líka á mína húð og þetta er alveg 100% eina kremið sem ég myndi bera á strákinn okkar.

Viðskiptavinur

Innihald

100% hrein nautatólg.

Verð og pöntun

Pantaðu krukku

Húðkrem 6.000 kr.
  • 60 g í glerkrukku
  • 100% hrein nautatólg
  • Sending hvert á land sem er: 1.500 kr.
  • Frí sending ef pantaðar eru tvær krukkur eða fleiri
Krukka af Griðungr húðkremi á steini við læk

Við höfum samband í tölvupósti til að staðfesta pöntunina. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að afgreiða og senda pöntunina.

Einnig er hægt að senda pöntun beint á gridungr@gridungr.is eða hafa samband við okkur á Instagram.

Hafðu samband

Heyrðu í okkur

Spurningar, pantanir eða langar þig bara að segja hæ? Sendu okkur línu eða kíktu á okkur á Instagram.

Opnar póstforritið þitt með skilaboðunum tilbúnum.